23. apr 2024

Aðalfundur Norðurorku hf. árið 2024

Mynd: Axel Þórhallsson
Mynd: Axel Þórhallsson

Aðalfundur Norðurorku hf. árið 2024

Aðalfundur Norðurorku hf. var haldinn fyrr í dag, 23. apríl 2024. Eigendur félagsins eru sex sveitarfélög, Akureyrarbær, Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit, Svalbarðsstrandarhreppur og Þingeyjarsveit.

Rekstur Norðurorku gekk vel á árinu 2023. Ársvelta samstæðunnar var 5 milljarðar króna. Hagnaður ársins var 629 milljónir króna eftir skatta, eigið fé er 10 milljarðar króna. Á aðalfundinum í dag var ákveðið að ekki verði greiddur arður af hlutafé. Samstæðureikningur samanstendur af rekstri Norðurorku og dótturfélagsins Fallorku ehf. auk áhrifa frá hlutdeildarfélögunum Tengir hf. og NORAK ehf.

Rekstur samstæðunnar var í ágætum takti við áætlanir en hagnaður þó meiri en áætlað var, sem skýrist fyrst og fremst af tekjuaukningu og lægri afskriftum.

Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 52,7% og veltufé frá rekstri er 1.862 milljónir króna. Hagnaður ársins var 629 milljónir króna en handbært fé í árslok einungis 73 milljónir króna. Það gefur auga leið að staðan varðandi handbært fé er óásættanlegt og við því þarf að bregðast. Tekin voru ný „græn“ lán á árinu að upphæð 800 milljónir króna. Langtímaskuldir í árslok voru rúmlega 7,7 milljarðar króna.

Til fjárfestinga samstæðunnar í endurbótum á kerfum og til nýframkvæmda var varið rúmlega 2,1 milljarði króna sem var nokkuð umfram áætlun ársins. Miðað við fjárfestingar ársins þá vantar 240 milljónir til þess að veltufé frá rekstri standi undir fjárfestingum. Það bil, og meira til, þarf að brúa með lánsfé. Miklar framkvæmdir eru á starfssvæði Norðurorku og eru fjárfestingar móðurfélagsins, horft til næstu fjögurra ára, áætlaðar ríflega 6,6 milljarðar króna.

Verkefni liðinna ára hafa verið stór og verða áfram, einkum í hitaveitu. Mikil aukning er í notkun á jarðhitavatni í samfélaginu, langt umfram fólksfjölgun. Í þessu sambandi er mikilvægt að muna að auðlindir okkar í heitu og köldu vatni eru ekki óþrjótandi. Við verðum að ganga vel um auðlindirnar og sýna ábyrgð á nýtingu þeirra. Rík þörf er á að verðskrá hitaveitu dragi úr óþarfa notkun en „snjallmælar“ munu skapa möguleika á þrepaskiptum verðskrám sem umbuna þeim sem vanda sig og fara vel með. Sóun á heitu vatni og neysluvatni eykur og hraðar fjárfestingaþörf í innviðum, sem kallar á hækkanir á verðskrá. Því er mikilvægt að horfa til þeirra tækifæra sem felast í því að fara vel með og forðast sóun á auðlindunum.

Í stjórn Norðurorku voru kjörin þau Geir Kristinn Aðalsteinsson, Hilda Jana Gísladóttir, Hlynur Jóhannsson, Sóley Björk Stefánsdóttir og Þórhallur Jónsson. Í varastjórn voru kjörin Heimir Örn Árnason, Inga Dís Sigurðardóttir, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, Sindri Kristjánsson og Víðir Benediktsson.

Vakin er athygli á að ársskýrsla Norðurorku er komin út á rafrænu formi líkt og undanfarin ár. Hana má nálgast HÉR.