9. júl 2018

Lokað fyrir kalt vatn vegna bilunar í hluta Hlíðahverfis - UPPFÆRT kl. 16:40

09.07.2018 Kl. 16:40 (Uppfært)
Viðgerð gengur vel og er nú langt komin.
Reiknað er með að vatn verði komið aftur á klukkan 18.00


09.07.2018 Kl. 15:20 (Fyrsta frétt)
Vegna bilunar er nú þegar, mánudaginn  09.07.2018 kl. 15.20, lokað fyrir kalt vatn í Lönguhlíð, Áshlíð, Höfðahlíð og hluta Háhlíðar og Skarðshlíðar.

Lokað verður á meðan viðgerð stendur yfir. Nánari upplýsingar verða birtar hér á heimasíðunni um leið og þær liggja fyrir.   

Varast ber að nota heita vatnið á meðan á lokuninni stendur þar sem það er óblandað og því MJÖG HEITT.

Hér má sjá góð ráð við kaldavatnsrofi.

Viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem bilunin kann að valda.

Hér að neðan má sjá mynd af svæðinu sem um ræðir.