6. mar 2012

Aðalfundur Norðurorku 2012

Aðalfundur Norðurorku hf. verður haldinn föstudaginn 9. mars n.k. kl. 16.00.

Aðalfundur Norðurorku hf. verður haldinn föstudaginn 9. mars n.k. kl. 16.00.

Dagskrá fundarins er í samræmi við samþykktir félagsins svohljóðandi:

  1. Stjórn félagsins skýrir frá hag félagsins og rekstri þess á næstliðnu starfsári.
  2. Ársreikningur félagsins fyrir liðið starfsár lagður fram til samþykktar ásamt skýrslu endurskoðenda og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu og um arðgreiðslur og framlög í varasjóð.
  3. Tekin ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna.
  4. Kosning stjórnar félagsins.
  5. Kosning endurskoðenda.
  6. Önnur mál.

Á stjórnarfundi félagsins þann 5. mars s.l. var aðalfundur félagsins undirbúinn og ársreikningur samþykktur og áritaður af stjórn.

 

Stjórn og framkvæmdaráð Norðurorku

Stjórn og framkvæmdaráð Norðurorku hf.

Stefán H. Steindórsson, Sigurður J. Sigurðsson, Ásdís Elva Rögnvaldsdóttir, Edward Hákon Huijbens, Njáll Trausti Friðbertsson, Ágúst Torfi Hauksson, Halla Björk Reynisdóttir, Geir Kristinn Aðalsteinsson og Baldur Dýrfjörð.