17. mar 2011

Aðalfundur Norðurorku hf

Aðalfundur Norðurorku hf var haldinn föstudaginn 18. mars 2011. Á dagskrá fundarins voru almenn aðalfundarstörf. Á fundinum voru ársskýrsla og ársreikningar lagðir fram til afgreiðslu, kosin ný stjórn og varastjórn, tekin ákvörðun um greiðslu arðs og önnur atriði sem samkvæmt samþykktum félagsins eiga að vera á dagskrá aðalfundar.

Aðalfundur Norðurorku hf var haldinn föstudaginn 18. mars 2011.

Á dagskrá fundarins voru almenn aðalfundarstörf. 
Á fundinum voru ársskýrsla og ársreikningar lagðir fram til afgreiðslu, kosin ný stjórn og varastjórn, tekin ákvörðun um greiðslu arðs og önnur atriði sem samkvæmt samþykktum félagsins eiga að vera á dagskrá aðalfundar. 

Fram kom í máli stjórnarformanns Geirs Kristins Aðalsteinssonar að afkoma félagsins væri mjög góð og afar ánægjulegt hve viðsnúningur til hins betra hefði náðs síðast liðin tvö ár eftir mikið áfall í kjölfar bankahrunsins.

Í stjórn fyrirtækisins voru kosin Ásdís Elva Rögnvaldsdóttir, Edward Hákon Huijbens, Geir Kristinn Aðalsteinsson, Halla Björk Reynisdóttir og Njáll Trausti Friðbertsson.

Á fundinum tilkynnti Franz Árnason forstjóri að hann myndi láta af störfum á árinu.  Geir Kristinn þakkaði Franz vel unninn störf í þágu Norðurorku og forvera hennar.  Fór hann í stuttu máli yfir helstu áfanga í starfi Franz í fyrirtækinu síðastliðin tæpan aldarfjórðung en lauk máli sínum með því að gera grein fyrir að Franz yrði kvaddur sérstaklega þegar kæmi að formlegum starfslokum hans síðar á þessu ári.