Aðalfundur Norðurorku hf. var haldinn fyrr í dag, 9. apríl 2025. Eigendur félagsins eru sex sveitarfélög, Akureyrarbær, Eyjafjarðarsveit, Grýtubakkahreppur, Hörgársveit, Svalbarðsstrandarhreppur og Þingeyjarsveit.
Rekstur Norðurorku gekk vel á árinu 2024. Ársvelta samstæðunnar var tæplega 5,8 milljarðar króna og eigið fé er 10,8 milljarðar króna. Á aðalfundinum í dag var ákveðið að ekki verði greiddur arður af hlutafé. Samstæðureikningur samanstendur af rekstri Norðurorku og dótturfélagsins Fallorku ehf. auk áhrifa frá hlutdeildarfélögunum Tengir hf. og NORAK ehf.
Rekstur samstæðunnar var í ágætum takti við áætlanir en hagnaður þó meiri en áætlað var, sem skýrist fyrst og fremst af tekjuaukningu og lægri afskriftum.
Eiginfjárhlutfall samstæðunnar er 52,7% og veltufé frá rekstri er 1.853 milljónir króna. Hagnaður ársins var 782 milljónir króna en handbært fé í árslok 232 milljónir króna. Tekin voru ný lán á árinu að upphæð 800 milljónir króna. Langtímaskuldir í árslok voru rúmlega 8,3 milljarðar króna.
Til fjárfestinga samstæðunnar í endurbótum á kerfum og til nýframkvæmda var varið rúmlega 2,1 milljarði króna sem var nokkuð umfram áætlun ársins. Miðað við fjárfestingar ársins þá vantar talsvert upp á það að veltufé frá rekstri standi undir fjárfestingum. Það bil, og meira til, þarf að brúa með lánsfé. Miklar framkvæmdir eru á starfssvæði Norðurorku og eru fjárfestingar móðurfélagsins, horft til næstu sex ára, áætlaðar tæplega 8,5 milljarðar króna.
Verkefni liðinna ára hafa verið umfangsmikil og fjárfrek. Ljóst er að svo verður áfram, einkum í hitaveitu. Notkun á heitu vatni eykst mun hraðar en fólksfjöldi á svæðinu. Tilefni er til þess að minna á það að auðlindir okkar í heitu og köldu vatni eru ekki óþrjótandi. Mikilvægt er að ganga vel um auðlindirnar og sýna ábyrgð á nýtingu þeirra. Sóun á heitu vatni og neysluvatni eykur og hraðar fjárfestingaþörf í innviðum, sem kallar á hækkanir á verðskrá. Því er mikilvægt að horfa til þeirra tækifæra sem felast í því að fara vel með og forðast sóun á auðlindunum.
Í stjórn Norðurorku voru kjörin þau Geir Kristinn Aðalsteinsson, Hilda Jana Gísladóttir, Hlynur Jóhannsson, Sóley Björk Stefánsdóttir og Þórhallur Jónsson. Í varastjórn voru kjörin Heimir Örn Árnason, Inga Dís Sigurðardóttir, Jana Salóme Ingibjargar Jósepsdóttir, Sindri Kristjánsson og Víðir Benediktsson.
Vakin er athygli á að ársskýrsla Norðurorku er komin út á rafrænu formi líkt og undanfarin ár. Hana má nálgast HÉR.
Opnunartími Norðurorku
Opið virka daga kl. 8-12 og 13-15