9. mar 2012

Ágúst Torfi segir stöðu sinni lausri

Fréttatilkynning frá Norðurorku hf. Ágúst Torfi Hauksson lætur af störfum sem forstjóri Norðurorku hf.

Fréttatilkynning frá Norðurorku hf.

Ágúst Torfi Hauksson lætur af störfum sem forstjóri Norðurorku hf.

Ágúst Torfi Hauksson hefur sagt upp starfi sínu sem forstjóri Norðurorku hf. miðað við síðustu mánaðarmót og var sú ákvörðun hans tilkynnt á starfsmannafundi Norðurorku hf. í dag föstudaginn 9. mars kl. 8.50.
Ágúst mun að eigin ósk hverfa til annarra starfa.  Tímasetning starfsloka mun ákvarðast samkvæmt nánara samkomulagi aðila.

Stjórn Norðurorku hf. óskar Ágústi Torfa velfarnaðar á nýjum starfsvettvangi.