20. mar 2014

Ársfundi Norðurorku hf. frestað

Ákveðið hefur verið að fresta ársfundi Norðurorku hf. sem vera átti á morgun föstudaginn 21. mars til föstudagsins 11. apríl nk.

Mikil óvissa er um samgöngu í lofti og á láði. Því er óvíst hvort fyrirlesarar og gestir sem eiga um lengri veg að fara komist til Akureyrar.

Aðalfundur félagsins verður hins vegar haldinn eins og áætlað hafði verið og verður hann kl. 14:00 í Hofi.