2. apr 2012

Auglýst eftir rafvirkja til starfa á framkvæmdasviði Norðurorku hf.

Norðurorka hf. auglýsir eftir rafvirkja til starfa á framkvæmdasviði.

Norðurorka hf. auglýsir eftir rafvirkja til starfa á framkvæmdasviði. Umsóknarfrestur er til 16. apríl n.k.

Í auglýsingu um starfið segir m.a.:

RAFVIRKI

Norðurorka hf. óskar eftir að ráða rafvirkja

Starfssvið
Viðhald og tengingar í dreifikerfi
Nýframkvæmdir í dreifikerfi
Viðhald og nýframkvæmdir í spennistöðvum
Upplýsingagjöf vegna lagna
Almenn raflagnavinna

Menntunar- og hæfniskröfur
Rafvirkjamenntun
Reynsla við háspennuvirki og tengingar kostur
Almenn tölvukunnátta
Bílpróf
Geta til að vinna sjálfstætt
Jákvæðni og góð samskiptafærni

Nánari upplýsingar má finna hér.