28. mar 2014

Bilun í brunni á mótum Vestursíðu og Bugðusíðu, taka þarf heita vatnið af á stóru svæði.

Vegna bilunar í brunni á mótum Vestursíðu og Bugðusíðu þarf að taka heita vatnið af á stóru svæði.  Óvíst er hvers eðlis bilunin er og því ekki hægt að segja til um hversu lengi vatnslaust verður.

Lokunarsvæðið tekur til hluta af Núpasíðu, hluta af Stapasíðu, Kjalarsíðu 1a og 1b og Vestursíðu, sjá nánar á myndinni hér fyrir neðan.

Viðskiptavinum er bent á að gæta vel að því að allir kranar séu lokaðir þegar vatn kemur á aftur. Eins er viðskiptavinum bent á að huga að hitakerfum sínum, dælum á gólfhitalögnum, varmaskiptum og öðrum slíkum búnaði. Jafnframt er mjög gott að lofttæma ofnakerfi eftir að vatnið er komið á. Hafi viðskiptavinir ekki þekkingu á búnaði sínum er nauðsynlegt að hafa samband við píplagningameistara til þess að huga að kerfinu og búnaði þess.

Nánari fréttir af framvindu verksins verða settar inn undir fréttir hér á heimasíðunni.

Leiðbeiningar vegna þjónusturofs má finna hér.

Lokun hitaveita 28. mars Núpasíða, Stapasíða, Keilusíða, Vestursíða

Viðskiptavinir sem hafa skráð sig með farsímanúmer (GSM) á MÍNUM SÍÐUM fá sent SMS við þjónusturof.