1. maí 2015

Bilun í dreifikerfi vatnsveitu á Akureyri

Bilun varð í 140 mm vatnslögn á gatnamótum Byggðavegar og Hrafnagilsstræti á Akureyri á tólfta tímanum að kvöldi 1.  maí.  Vatnslaust er á hluta Suðurbrekku, m.a. í húsum Menntaskólans og Íþróttahöllinni.  Óvíst er hversu langan tíma tekur að gera við bilunina en vegna vatnsflaumsins frá biluðu lögninni uður verulegar skemmdir á malbiki á bilunarsvæðinu og því nauðsynlegt að loka götum á  parti.

Hrafnagilsstræti Byggðavegur bilun vatnsveita maí 2015