27. nóv 2013

Bilun í hitaveitulögn við Hlíðarbraut

Í gær kom fram bilun í stofnlögn hitaveitu við Hlíðarbraut.  Viðgerð hefst í dag og mun standa fram eftir degi.

Tilkynningar hafa verið sendar til þeirra umráðamanna húseigna á svæðinu sem verða fyrir skerðingu á þjónustu af þessum sökum.

Vinsamlega kynnið ykkur góð ráð þegar kemur til þjónusturofs.

Sé frekari upplýsinga óskað vinsamlega hafið samband við þjónustuver Norðurorku hf. í síma 460-1300 eða með tölvupósti á thjonusta@no.is.

Svæðið sem lokunin tekur til má sjá hér (smellið á myndina til að sjá hana stærri).

Draupnisgata - Lindarsíða - Arnarsíða (hluti).

Lokunarsvæði vegna viðgerða á bilaðri stofnlögn við Hlíðarbraut