7. jan 2012

Bilun í jarðstreng veldur rafmagnsleysi í Innbænum

Rafmagnslaust varð í Innbænum og nágrenni þegar bilun kom upp í jarðstreng.

Rafmagnslaust varð í Innbænum og nágrenni þegar bilun kom upp í jarðstreng sem liggur á milli spennistöðvar í gamla Barnaskólanum við Hafnarstræti (sem hýst hefur Saga Capital) og spennistöðvar neðst í Spítalastíg.

Rafmagnið fór af 18.43 en búið var að koma á hringtengingu framhjá biluninni og rafmagn komið á aftur kl. 19.20.