11. ágú 2011

Bilun stofnlögn hitaveitu

Bilun í stofnlögn að Gerðahverfi
Bilun í stofnlögn að Gerðahverfi
Bilun er í stofnlögn hitaveitu sem fæðir efra Gerðahverfi. Verið er að grafa niður á lögnina og undirbúa viðgerð. Taka þarf vatn af hverfinu á meðan á viðgerðinni stendur.

Bilun er í stofnlögn hitaveitu sem fæðir efra Gerðahverfið á Akureyri.  Verið er að grafa niður á lögnina og undirbúa viðgerð.  Taka þarf vatn af hverfinu á meðan á viðgerðinni stendur.  Reiknað er með að vatnið verði tekið af um kl. 14:30 en óvíst er hversu langan tíma viðgerðin tekur, en vonast er til að henni ljúki í kvöld.

Viðskiptavinum er bent á að gæta vel að því að allir kranar séu lokaðir þegar vatn kemur á aftur.  Eins er viðskiptavinum bent á að huga að hitakerfum sínum, dælum á gólfhitalögnum, varmaskiptum og öðrum slíkum búnaði.  Jafnframt er mjög gott að lofttæma ofnakerfi eftir að vatnið er komið á.  Hafi viðskiptavinir ekki þekkingu á búnaði sínum er nauðsynlegt að hafa samband við píplagningameistara til þess að huga að kerfinu og búnaði þess. 

Kort af svæðinu sem lokunin tekur til má sjá hér.