17. des 2013

Björgunarsveitin Súlur eignast nýjan bakhjarl

Stjórn Norðurorku hf. samþykkti á fundi sínum í desember að styrkja Björgunarsveitina Súlur á Akureyri næstu þrjú árin með því að vera bakhjarl áramóta flugeldasýningar sveitarinnar.  Súlur, Björgunarsveitin á Akureyri, var stofnuð árið 1999 með sameiningu þriggja björgunarsveita á Akureyri, Hjálparsveitar skáta, Flugbjörgunarsveitarinnar og Sjóbjörgunarsveitarinnar Súlna. Sveitin hefur vaxið og dafnað á undanförnum árum og marg sýnt fram á mikilvægi sitt við ýmsar erfiðar aðstæður.

Norðurorka hf. er eitt af þeim fyrirtækjum sem á mikið undir því að til staðar séu öflugar björgunarsveitir á starfssvæði fyrirtækisins enda vinnslusvæði þess fjölmörg og dreifikerfi fyrirtækisins víðfeðm. Mikið getur því legið við að fá aðstoð ef koma erfiðir vetur, óveður eða náttúruhamfarir sem leitt geta til bilana eða rekstrartruflana.  Með bakhjarlasamningi Norðurorku fær Björgunarsveitin Súlur kr. 1.000.000 á ári næstu þrjú árin, 2014, 2015 og 2016.

Norðurorka gerist bakhjarl Súlna Björgunarsveitarinnar á Akureyri

 Helgi Jóhannesson forstjóri Norðurorku hf. og Magnús Viðar Arnarsson formaður Súlna