29. mar 2011

Borun hafin á Glerárdal

Bor Ræktunarsambandsins á Glerárdal
Bor Ræktunarsambandsins á Glerárdal
Hafin er borun á rannsóknarholum í sorphaugnunum á Glerárdal. Með samningi við Akureyrarbæ tók Norðurorka að sér að rannsaka mögulegt magn af hauggasi með það fyrir augum að fullnægjandi upplýsingar liggi fyrir um hvort á svæðinu sé vinnanlegt magn af hauggasi til metangasvinnslu.

Hafin er borun á rannsóknarholum í sorphaugnunum á Glerárdal.

Með samningi við Akureyrarbæ tók Norðurorka að sér að rannsaka mögulegt magn af hauggasi með það fyrir augum að fullnægjandi upplýsingar liggi fyrir um hvort á svæðinu sé vinnanlegt magn af hauggasi til metangasvinnslu.

Í framhaldinu gerði Norðurorka samninga við Ræktunarsamband Flóa og Skeiða um borun á rannsóknarholum og við verkfræðiskrifstofuna Mannvit um ráðgjöf, mælingar og skýrslugerð um hauganna sem mögulegt vinnslusvæði gass.

Bormenn frá Ræktunarsambandinu settu borinn upp í morgun og hófust þegar handa við borun.  Frekari fréttir af verkefninu munu birtast á heimasíðunni eftir því sem framvindur.