Rannsóknir eru veigamikill þáttur í starfsemi Norðurorku en þær byggja annars vegar á því að fylgjast vel með þeim auðlindum sem verið er að nýta hverju sinni, svokallað vinnslueftirlit, en hins vegar á að huga að mögulegum framtíðarvinnslusvæðum.
Heitavatnsnotkun á Akureyri hefur vaxið hratt undanfarin ár. Mikið hefur verið byggt á Akureyri og nágrenni en þegar horft er til aukningar í íbúafjölda virðist sem hver einstaklingur sé að nota aukið magn hitaveituvatns. Meðal annars þess vegna hefur þörf á rannsóknum, til öflunar á heitu vatni, aukist enn frekar.
Þessa dagana er Vatnsborun ehf. við borun á rannsóknarholum í Eyjafirði en hitastigulsboranir sem þessar eru notaðar til að leita að jarðhita þar sem engin yfirborðsummerki eru. Bora þarf um 60 metra í berg þannig að hver hola er að jafnaði 60-100m djúp, allt eftir því hversu djúpt er niður á bergið. Á vegum Norðurorku verða boraðar um 30 hitastigulsholur víða í firðinum, á stöðum sem ekki hefur verið borað á áður.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum sem Hjalti Steinn Gunnarsson tók síðdegis í dag þá stendur nú yfir borun við Síðuskóla á Akureyri. Reiknað er með að boruninni ljúki í kvöld eða á morgun.
Opnunartími Norðurorku
Opið virka daga kl. 8-12 og 13-15