18. jan 2014

Byrjað að hleypa vatni á í Giljahverfi

Viðgerð á stofnlögn er nú lokið og byrjað að hleypa vatni á kerfið.

Vaknin er athygli á því að það tekur nokkurn tíma að ná upp fullum þrýstingi á kerfið.  Við gerum ráð fyrir að fullur þrýstingur verði kominn á um kl. 20:00.

Viðskiptavinir eru beðnir að kynna sér góð ráð komi til þjónusturofs, hér á heimasíðunni.

viðgerð á stofnlögn lokið laugardaginn 18. janúar 2014

 Þjónusturof hitaveitu - ábending til húsráðenda

  1. Hafa þarf í huga að loft getur komist á kerfið þegar vatni er hleypt á að nýju. Sérstaklega getur þurft að huga að sérhæfðum búnaði hitakerfa húsa, s.s. gólfhitakerfum, hitalögnum í plönum og dælum þeirra, t.d. með því að stöðva þær á meðan vatnsleysi varir. Kerfin eiga þó að vera útbúin þannig að þessi hætta sé í lágmarki.
  2. Bregðast þarf við lofti í kerfum með lofttæmingu á ofnum, dælum og öðrum búnaði sem loft getur sest í. Einnig er nauðsynlegt að huga að öryggisloka sem getur opnast þegar vatni er hleypt á ef stjórnlokar á grind eru stirðir.
  3. Húsráðendum er bent á að við viðgerðir eða endurbætur á stofnkerfum og/eða heimlögnum kunna óhreinindi að fara af stað í lögnum þegar vatni er hleypt á. Því er nauðsynlegt að skola kerfið vel út með því að láta vatn renna um stund. Best er að útskolun fari fram sem næst inntaksstað sé þess kostur.
  4. Sé húsráðandi í vafa um hvernig bregðast á við skal undantekningalaust haft samband við við pípulagningameistara hússins.