6. apr 2018

Aðalfundur Norðurorku hf. 2018

Aðalfundur Norðurorku hf. var haldinn í dag 6. apríl 2018. Eigendur félagsins eru sex sveitar­­félög, Þingeyjarsveit, Grýtubakkahreppur, Svalbarðsstrandarhreppur, Eyjafjarðar­sveit, Akureyrarbær og Hörgársveit.

Rekstur Norðurorku gekk vel á árinu 2017. Ársvelta samstæðunnar var 3,5 milljarðar króna. Hagnaður ársins var 498 milljónir króna eftir skatta og eigið fé  8,6 milljarðar króna. Á aðalfundinum í dag var ákveðið að greiða hluthöfum 15% arð af hlutafé eða 127 milljónir króna. Samstæðureikningur samanstendur af rekstri Norðurorku og dótturfélagsins Fallorku ehf. auk áhrifa frá hlutdeildarfélögunum Tengi hf. og Norak ehf. en rekstur þeirra allra gekk vel á árinu.

Rekstur samstæðunnar var nokkuð í takt við áætlanir en þó vex rekstrarkostnaður ívið hraðar en tekjur. Eigið fé samstæðunnar er eins og áður segir 8,6 milljarðar króna og eiginfjárhlutfall 61%. Norðurorka greiddi niður lán á liðnu ári um 106 milljónir króna og þá tók dótturfélagið Fallorka nýtt 627 milljóna lán í Evrum. Veltufé frá rekstri var rúmlega 1 milljarður króna og handbært fé í árslok 1,2 milljarðar króna. Langtímaskuldir í árslok voru tæpir 2,7 milljarðar króna og lækkuðu milli ára en stór hluti þeirra færast á skammtímaskuldir þar sem þær koma til greiðslu á árinu 2018. Í farvatninu er því endurfjármögnun á skuldabréfum upp á 2,2 milljarða sem Norðurorka yfirtók við kaup á fráveitu Akureyrar.

Fjárfesting samstæðunnar í endurbótum á kerfum og nýframkvæmdum var 1565 milljónir króna sem var lægra en áætlanir gerðu ráð fyrir ekki síst þar sem framkvæmd við hreinsistöð fráveitu dróst. Til fjárfestinga árið 2018 eru áætlaðir tæpir 1,8 milljarðar króna, hitaveita 642 milljónir, fráveita 431 milljónir, vatnsveita 225 milljónir, rafveita 108 milljónir, aðrir rekstrarþættir svo sem húsnæði að Rangárvöllum, bílar og tæki um 383 milljónir króna.

Ársskýrslu Norðurorku fyrir árið 2017 má finna hér.

Verkefni næstu ára eru stór og fjárfrek, einkum í fráveitu og hitaveitu. Á móti hillir undir að stórverkefni Fallorku þ.e. ný virkjun í Glerá verði gangsett á vormánuðum 2018. Framkvæmdir við byggingu hreinsistöðvar fráveitu við Sandgerðisbót eru í farvatninu og áætluð verklok upp úr áramótum 2020 fáist tilboð í verkið. Þá er að fara í framkvæmd borun viðbótarholu á Arnarnesi sem og fyrsti hluti nýrrar Hjalteyrarlagnar þ.e. lögn  frá Glerártorgi og norður úr þéttbýlinu á Akureyri. Áætlaður heildarkostnaður næstu ára við vatnsaukningu frá Arnarnesi, þ.e. lagnir og borun er um 2,2 milljarðar. Þá er í framkvæmd verkefnið að virkja neysluvatn úr Vaðlaheiðargöngum sem unnið er í samstarfi við Vaðlaheiðargöng hf.

Þrátt fyrir að okkar bíði stór og mikil verkefni í framtíðinni er það von okkar að verðskrár fyrirtækisins verði til lengri tíma litið áfram með þeim hagstæðustu þegar horft er til fyrirtækja í sambærilegum rekstri. Sem samfélagi og einstaklingum er okkur hollt að muna að auðlindir okkar í heitu og köldu vatni eru ekki óþrjótandi. Mikið fjármagn þarf til að afla og vinna nýjar auðlindir og til uppbyggingar á kerfum til að auka flutningsgetu þeirra. Sóun á heitu vatni og neysluvatni eykur og hraðar fjárfestingaþörf í innviðum sem aftur kallar á hækkanir á verðskrá félagsins. Því er mikilvægt að halda til haga þeim tækifærum sem felast í því að fara vel með og forðast sóun á auðlindunum.

Í stjórn Norðurorku voru kjörin Edward Hákon Huijbens, Friðbjörg Jóhanna Sigurjónsdóttir, Geir Kristinn Aðalsteinsson, Ingibjörg Ólöf Isaksen og Gunnar Gíslason. Í varastjórn voru kjörin, Eva Hrund Einarsdóttir, Arnar Þór Jóhannesson, Óskar Ingi Sigurðsson, Margrét Kristín Helgadóttir og Matthías Rögnvaldsson.

 

Aðalfundur Norðurorku 2018 - fundastjóri, stjórnarformaður, forstjóri og fulltrúar hluthafa ásamt ritara aðalfundarins. (Mynd Auðunn Níelsson)