1. júl 2013

Gjaldskrá Landsnets fyrir flutning hækkar frá 1. júlí 2013

Verðskrá raforkudreifingar Norðurorku hækkar frá 1. júlí 2013 en hækkunin er tilkomin vegna hækkunar á verðskrá Landsnets fyrir flutning. Engin hækkun er á dreifihluta Norðurorku.

Verðskrá raforkudreifingar Norðurorku hækkar frá 1. júlí 2013 en hækkunin er tilkomin vegna hækkunar á verðskrá Landsnets fyrir flutning.

Orkugjald flutnings hækkar um 11 aura úr 1,25 kr. í 1,36 kr. og flutningur á ótryggu rafmagni hækkar úr 0,32 aurum í 0,38 aura.   Engin hækkun er á dreifihluta Norðurorku þannig að heildarverð dreifingar hækkar því aðeins sem nemur framangreindri auratölu.