19. jún 2011

Færri stór verk, mikið um viðhald og endurnýjun.

Nóg er að gera hjá starfsmönnum Norðurorku hf.

Nóg er að gera hjá starfsmönnum Norðurorku hf. einkum í verkefnum sem tengjast viðhaldi og endurnýjun lagna.  Minna hefur hins vegar verið um stærri verkefni en oft áður á þessum árstíma.  Sem dæmi um verkefni af áðurnefndum toga er endurnýjun raflagna í Þingvallarstræti þar sem jafnframt er þá gerð spennubreyting í þeim húsum sem við götuna standa.