23. mar 2011

Fallorka ehf. efst í flokki raforkusala

Á dögunum voru birtar niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar en þetta er tólfta árið sem ánægja viðskiptavina íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti.

Á dögunum voru birtar niðurstöður Íslensku ánægjuvogarinnar en þetta er tólfta árið sem ánægja viðskiptavina íslenskra fyrirtækja er mæld með þessum hætti.

Af raforkusölum var Fallorka ehf. dótturfyrirtæki Norðurorku hf. með hæstu einkun fyrir árið 2010 en var í næst efsta sæti fyrir árið 2009.  Almennt voru orkufyrirtæki að koma verr út úr mælingunni fyrir árið 2010 heldur en árið 2009 en breytingin hjá Fallorku var þó óveruleg og sínu minnst.

Íslenska ánægjuvogin