14. apr 2011

Flokkum og skilum

Norðurorka hefur um langt skeið grófflokkað sorp og nú hefur verið ákveðið að fara alla leið.

Norðurorka hefur um langt skeið grófflokkað sorp.  Í kjölfar þess að komin er á ítarlegri flokkun og þjónusta er hins vegar ekki eftir neinu að bíða með að fara alla leið.

Starfsmenn Norðurorku leituðu sér ráðgjafar hjá Gámaþjónustunni og á starfsmannafundi í morgun kynnti fulltrúi þeirra með hvaða hætti verkefnið gengur fram hjá Norðurorku.  Fram kom hjá Helga Pálssyni rekstrarstjóra Gámaþjónustu Norðurlands að Akureyringar byggju að langri hefð í flokkun, mjög vel hefði gengið með verkefnið og bæði íbúar og forsvarsmenn fyrirtækja tækju því mjög vel.