27. maí 2013

Framkvæmdir hafa gengið vel og verður heita vatninu hleypt á innan skamms

Framkvæmdir í miðbænum hafa gengið vel og verið er að hleypa vatninu á þessa stundina. Hafa ber í huga að það getur tekið nokkurn tíma að byggjast upp eðlilegur þrýstingur.

Framkvæmdir í miðbænum hafa gengið vel og verið er að hleypa vatninu á þessa stundina (um kl. 21:00). Hafa ber í huga að það getur tekið nokkurn tíma að byggjast upp eðlilegur þrýstingur í dreifikerfinu.

Um leið og viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem óvænt atvik fyrr í dag leiddu til, þ.e. að taka þurfti heita vatnið af sólahring fyrr en ætlað var, er minnt á mikilvægi þess að fara að góðum ráðum komi til þjónusturofs - sem finna má hér. Mikilvægt er að kynna sér vel þessi ráð og leita til fagmanna þegar við á.

Brunnavinna í miðbænum maí 2013