10. maí 2012

Framkvæmdir í Brekkugötu gengu vel

Framkvæmdir við Brekkugötu
Framkvæmdir við Brekkugötu
Framkvæmdir í Brekkugötu gengu vel og búið er að hleypa vatni á kerfið.

Framkvæmdir í Brekkugötu gengu vel og búið er að hleypa vatni á kerfið.  Byrjað var að hleypa vatninu á stofnlagnir fyrir skömmu.  Vatninu er hleypt mjög rólega á þannig að fullur þrýstingur kemst ekki á fyrr en síðar í dag.

Komi upp einhver vandamál þá er viðskiptavinum bent á að hafa samband við bakvakt Norðurorku í síma 892 7305.  Mjög gott er að lofttæma ofna í húsum með þar til gerðum lykli fyrir lofttæmingarkrana á ofnunum.  Sé fólk ekki með slíka krana tiltæka eða telji sig ekki hafa næga þekkingu til að vinna slíkt verk þá endlega hafið samband við pípulagningameistara hússins.