29. mar 2011

Framkvæmdir við Svalbarðsstrandarveitu

Áfram er unnið við vatnsveituna á Svalbarðsströnd.

Áfram er unnið við vatnsveituna á Svalbarðsströnd og ganga þær samkvæmt áætlun.  Verið er að tæma miðlunargeyminn ofan við þorpið og verður hann síðan ástandsskoðaður og yfirfarinn í dag og næstu daga.

Viðskiptavinir á Svalbarðseyri eru áfram beðnir að fara sparlega með vatn á meðan á framkvæmdum stendur.