20. sep 2011

Framkvæmdir við Tónatröð

Í undirbúningi er að fara í endurbætur við Tónatröð með það að markmiði að lóðir við götuna verði byggingarhæfar.

Í undirbúningi er að fara í endurbætur við Tónatröð með það að markmiði að lóðir við götuna verði byggingarhæfar.  Af þessu tilefni var óskað eftir tilboðum í framkvæmdir sameiginlega af Akureyrarbæ og Norðurorku hf.

Lægsta tilboð í framkvæmdir átti G.Hjálmarsson með kr. 6.456.050 eða 92,2% af kostnaðaráætlun.