3. maí 2012

Framkvæmdir við Vestursíðu

Byrjað var að hleypa vatninu á lagnir fyrir skömmu.

Framkvæmdir við Vestursíðu gengu vel og er þeim lokið.  Byrjað var að hleypa vatninu á stofnlagnir fyrir skömmu.  Vatninu er hleypt mjög rólega á þannig að fullur þrýstingur kemst ekki á fyrr en síðar í dag.

Komi upp einhver vandamál þá er viðskiptavinum bent á að hafa samband við bakvakt Norðurorku í síma 892 7305.  Mjög gott er að lofttæma ofna í húsum með þar til gerðum lykli fyrir lofttæmingarkrana á ofnunum.  Sé fólk ekki með slíka krana tiltæka eða telji sig ekki hafa næga þekkingu til að vinna slíkt verk þá endlega hafið samband við pípulagningameistara hússins.