6. jún 2013

Framkvæmdir við viðgerð á bilun í Skógarlundi dragast

Framkvæmdir við viðgerð á bilun í Skógarlundi dragast þar sem bilunin er víðtækari en í fyrstu var talið.

Framkvæmdir við viðgerð á bilun í Skógarlundi dragast

Framkvæmdir við viðgerð á bilun í Skógarlundi dragast þar sem bilunin er víðtækari en í fyrstu var talið.

Komið er í ljós að grafa þarf upp stærra svæði og ljóst að skipta þarf um lengri hluta lagnarinnar en áætlað var í fyrstu.

Það mun því dragast fram á kvöldið og hugsanlega lengur að hægt verði að hleypa á heita vatninu að nýju.

Viðskiptavinir eru beðnir að fylgjast með framvindu málsins hér á heimasíðunni.