8. apr 2011

Frekari tafir í Svalbarðsstrandarveitu

Verkið reyndist umfangsmeira. Biðjum íbúa því að spara vatnið enn um sinn.

Vinna við miðlunargeymi vatnsveitunnar á Svalbarðsströnd reyndist mun umfangsmeiri en áætlað var í fyrstu.  Því þarf enn að biðja íbúa að fara sparlega með kalda vatnið.  Þegar farið var að þrífa miðlunargeyminn komi í ljós að tæring var meiri en búist var við og því tekin ákvörðun um að húða hann að innan með efni sem sérstaklega er ætlað til að húða vatnsgeyma.  Það verk ef hafið og hefur gengið ágætlega en hins vegar þarf efnið sinn þornunartíma auk þess sem það er borið á í tveimur lögum. 

Ekki er gert ráð fyrir að verkinu verði að fullu lokið fyrr en undir lok næstu viku.  Enn og aftur eru íbúar á Svalbarðsströnd beðnir velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.  Við getum þó glaðst yfir því að ekki hefur borið á vatnsskorti og er íbúum þökkuð sú tillitssemi sem þeir hafa sýnt okkur og samborgurum sínum.