23. jún 2011

Fyrirlestur á leikhúsloftinu

Leikhúsloftið Möðruvöllum
Leikhúsloftið Möðruvöllum
Baldur Dýrfjörð forstöðumaður þróunar hjá Norðurorku flytur erindi á Leikhúslofinu á Möðruvöllum fimmtudagskvöldið 23. júní.

Baldur Dýrfjörð forstöðumaður þróunar hjá Norðurorku flytur erindi á Leikhúslofinu á Möðruvöllum fimmtudagskvöldið 23. júní en þar er sumardagskráin nýlega hafin og margt fróðlegt efni þar tekið fyrir.

Erindi Baldurs nefnist "Sjálfsagt mál .... !   Hörgull eða gnóttir"  en í því mun Baldur færa fram nokkra fróðleiksmola um starfsemi Norðurorku með áherslu á jarðhitaleit í Eyjafirði fyrr og nú.