Landsvirkjun vinnur nú að frekari rannsóknum á háhitasvæðinu á Þeistareykjum og nýlega luku Jarðboranir við 2500 metra djúpa holu sem var stefnuboruð undir Ketilfjall en þar er megin hitauppstreymi svæðisins talið vera. Verkið tafðist nokkuð í upphafi vegan óvenju hás hita og þrýstings en eftir það gekk verkið mjög vel. Unnið er að lokafrágangi á holunni og gert ráð fyrir því að hún verði afkastamæld í nóvember.
Þetta er fyrri holan af tveimur sem bora á á þessu ári en hin holan verður boruð í jaðri vesturhluta Þeistareykja og gert ráð fyrir að borun hennar ljúki í nóvember.
Myndin með fréttinni er fengin af vef Þeistareykja ehf. www.theistareykir.is
Opnunartími í afgreiðslu:
Alla virka daga kl. 8-12 og 13-15
Opnunartími þjónustuborðs:
Mánudag til fimmtudags kl. 8-12 og 13-16
Föstudag kl. 8-12 og 13-15:20