29. des 2012

Gleðilegt nýtt ár

Starfsfólk Norðurorku hf. sendir viðskiptavinum félagsins bestu kveðjur um gleðilegt nýtt ár og þakkar viðskiptin á árinu sem er að líða.

Norðurorka hf. er meðal þeirra sem styður við starf björgunarsveita með því að veita styrk til flugeldasýningar sem verður samhliða áramótabrennunni við Réttarhvamm á Akureyri.  Kveikt verður í brennunni kl. 20:30 en flugeldasýningin hefst kl. 21:00.

Um leið og við sendum viðskiptavinum félagsins bestu kveðjur um gleðilegt nýtt ár og þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða vonum við að allir fari varlega um áramótin og allir sem ætla að kveikja í tertum, flugeldum og blysum noti öryggisgleraugu, séu í viðeigandi klæðnaði (ullin er góð) og gæti allra varúðarreglna.

Nýjárskveðja Norðurorku hf. 2013

Mynd; Baldur Dýrfjörð