4. apr 2011

Gulur dagur

Nokkrir starfsmenn Norðurorku sendu áskorun til starfsmanna fyrirtækisins um að mæta í gulu.

Nokkrir starfsmenn Norðurorku sendu áskorun til starfsmanna fyrirtækisins um að mæta í gulu síðastliðinn föstudag.

Í ljósi þess að síðasta föstudag bar upp á 1. apríl tóku samstarfsmennirnir áskoruninni misjafnlega, en þó nokkrir létu slag standa og skörtuðu páskalitum í ýmsum tónum.

Frumkvæði starfsmanna er frábært og spurning upp á hverju þeir taka næst.