15. apr 2013

Lokað fyrir heita vatnið vegna bilunar í Giljahverfi

Vegna viðgerðar á bilun í hitaveitu þarf að loka fyrir heita vatnið fimmtudaginn 18. apríl í hluta af Giljahverfi og iðnaðarsvæðinu við Réttarhvamm, Rangárvelli og Hlíðarvelli. Þá fer vatnið einnig af hesthúsahverfinu Hlíðarholti, bæjunum Hlíðarenda og Glerá og frístundahúsabyggðinni Hálöndum.

Vegna viðgerðar á bilun í hitaveitu þarf að loka fyrir heita vatnið í hluta af Giljahverfi og iðnaðarsvæðinu við Réttarhvamm, Rangárvelli og Hlíðarvelli.  Þá fer vatnið einnig af hesthúsahverfinu Hlíðarholti, bæjunum Hlíðarenda og Glerá og frístundahúsabyggðinni Hálöndum.

Lokað verður fyrir heitavatnið frá kl. 14:00 nk. fimmtudag 18. apríl.  Gert er ráð fyrir að viðgerð verði lokið eigi síðar en kl. 17:00 sama dag.

Húsráðendur er beðnir að hafa eftirfarandi í huga:

  1. Hafa þarf í huga að loft getur komist á kerfið þegar vatni er hleypt á að nýju. Sérstaklega getur þurft að huga að sérhæfðum búnaði hitakerfa húsa, s.s. gólfhitakerfum, hitalögnum í plönum og dælum þeirra, t.d. með því að stöðva þær á meðan vatnsleysi varir. Kerfin eiga þó að vera útbúin þannig að þessi hætta sé í lágmarki.
  2. Bregðast þarf við lofti í kerfum með loftæmingu á ofnum, dælum og öðrum búnaði sem loft getur sest í. Einnig er nauðsynlegt að huga að öryggisloka sem getur opnast þegar vatni er hleypt á ef stjórnlokar á grind eru stirðir.
  3. Húsráðendum er bent á að við viðgerðir eða endurbætur á stofnkerfum og/eða heimlögnum kunna óhreinindi að fara af stað í lögnum þegar vatni er hleypt á. Því er nauðsynlegt að skola kerfið vel út með því að láta vatn renna um stund. Best er að útskolun fari fram sem næst inntaksstað sé þess kostur.
  4. Sé húsráðandi í vafa um hvernig bregðast á við ofangreindum atriðum skal haft samband við pípulagningarmeistara hússins.

Hér má sjá myndir af svæðinu sem lokunin nær til (a) Giljahverfi, (b) allt svæðið

Vatnið af í Giljahverfi 18. apríl vegna viðgerðar á bilun