12. des 2012

Hjartað slær í heiðinni

Hjartað í Vaðlaheiði og jólatré við MA
Hjartað í Vaðlaheiði og jólatré við MA
Um nokkurra ára skeið hefur hjartað slegið í heiðinni og minnt á mikilvægi kærleikans í lífi okkar.

Um nokkurra ára skeið hefur hjartað slegið í heiðinni og minnt á mikilvægi kærleikans í lífi okkar.

Forgöngu að hjartanu hafa starfsmenn Rafeyrar haft og eiga þakkir skyldar enda hefur hjartaslagið vakið óskipta ánægju bæjarbúa og gesta.

Norðurorka hf. hefur stutt við framkvæmdina með því að taka þátt í kostnaði ásamt Becromal og Rafeyri.