22. maí 2013

Hreinsunarátak starfsfólks Norðurorku

Miðvikudaginn 22. maí fór starfsfólk Norðurorku ásamt fjölskyldum sínum í hreinsunarátak á svæðinu frá Glerárvirkjun upp að starfsstöð Norðurorku að Rangárvöllum.

Ljóst er að eftir langan og strangan vetur bíða mörg verkefni við að gera bæinn okkar og umhverfið fallegt og hreint fyrir komandi sumar.

Það er því ekki skrýtið að sú hugmynd kviknaði hjá starfsfólki Norðurorku að sameiginlega gætum við lagt þar nokkuð af mörkum.

Að loknum hefðbundnum vinnudegi í dag miðvikudaginn 22. maí fór starfsfólk Norðurorku ásamt fjölskyldum sínum í hreinsunarátak á svæðinu frá Glerárvirkjun upp að starfsstöð Norðurorku að Rangárvöllum.

Tínt var upp rusl við Glerárvirkjun og rafveitupollinn, meðfram göngustígnum upp með Glerá og skóginum þar í kring, á svæðinu norðan, austan og sunnan við Rangárvelli þar með talið upp með Hlíðarfjallsvegi frá hringtorginu á Hlíðarbraut upp að Rangárvöllum.

Eftir velheppnað hreinsunarátak mætti fólk glatt en þreytt á starfsstöð Norðurorku þar sem biðu grillaðir hamborgarar, pylsur og pizzur.

Hreinsunarátak starfsfólks Norðurorku og fjölskyldna þeirra 22. maí 2013

Hér má sjá vaskan hóp starfsmanna Norðurorku og þeirra fjölskyldna við hluta af ruslinu sem safnað var saman á svæðinu frá Glerárvirkjun upp með Glerá og að Rangárvöllum.

Hér má sjá nokkrar svipmyndir frá hreinsunarátakinu