Enn er nauðsynlegt fyrir íbúa í Svalbarðsstrandarhreppi að sjóða neysluvatn sitt
Í dag lágu fyrir niðurstöður í mælingum á sýnum sem tekin voru fyrir síðustu helgi og benda þær til þess að sú mengun sem varð í vatnsbóli og komst í veitukerfið sé að skolast út úr kerfinu. Er vonast til að þessi útskolun sé að klárast en þó er ljóst að hún getur tekið nokkurn tíma.
Einnig þarf að hafa í huga að nokkra daga tekur að fá niðurstöður á mælingum úr sýnum. Fleiri sýni eru komin í mælingu og munu niðurstöður liggja fyrir á næstu dögum.
Umburðarbréf verður sent til notenda í Svalbarðsstrandarhreppi þegar fullnægjandi niðurstöður liggja fyrir um að veitukerfið hafi endanlega hreinsað sig af menguninni auk þess sem tilkynning kemur hér inn á heimasíðuna.
Opnunartími Norðurorku
Opið virka daga kl. 8-12 og 13-15