10. júl 2015

Íbúum í Hrísey er ráðlagt að sjóða allt neysluvatn.

Af öryggisástæðum er íbúum í Hrísey ráðlagt að sjóða allt neysluvatn.

Samkvæmt vatnssýnum sem tekin voru í þessari viku er grunur um mengun í Hríseyjarveitu.    

Þrjú sýni voru tekin hjá notendum og sýndu tvö þeirra mengun. 

Vatnssýni verða tekin í veitukerfinu og vatnsbólum síðar í dag og mun niðurstaða þeirra væntanlega liggja fyrir á þriðjudag. 

Ítrekað er að af öryggisástæðum er ráðlagt að sjóða allt neysluvatn í Hríseyjarveitu þar til annað verður tilkynnt.