7. maí 2014

Kaldavatnslaust í Áshlíð og hluta Höfðahlíðar

Vegna framkvæmda við vatnsveitu er nauðsynlegt að loka fyrir kalda vatnið á morgun fimmtudaginn 8. maí frá kl. 8:00 og fram eftir í Áshlíð og hluta Höfðahlíðar, sbr. nánar hér fyrir neðan.

Sérstaka varúð skal sýna í umgengni við heitt vatn úr neysluvatnskrönum s.s. í eldhúsi og á baði þar sem kalt vatn til blöndunar er ekki tiltækt í vatnsleysi. Sérstaklega skal vara börn við þessari hættu og eftir atvikum skrúfa fyrir neysluvatnskrana á hitaveitugrind meðan á kaldavatnsleysi stendur.

Húsráðendum er bent á að kynna sér góð ráð komi til þjónusturofs hér á heimasíðunni.

Þær götur sem taka þarf vatnið af:

Höfðahlíð (austan Háhlíðar að Skarðshlíð)
Áshlíð


Vatnsveita lokunarsvæði 8. maí 2014 Áshlíð Höfðahlíð