12. maí 2014

Kaldavatnslaust í Lyngholti

Vegna framkvæmda við vatnsveitu er nauðsynlegt að loka fyrir kalda vatnið á morgun þriðjudaginn 13. maí frá kl. 8:30 og fram eftir degi í Lyngholti, sbr. nánar hér fyrir neðan.

Sérstaka varúð skal sýna í umgengni við heitt vatn úr neysluvatnskrönum s.s. í eldhúsi og á baði þar sem kalt vatn til blöndunar er ekki tiltækt í vatnsleysi. Sérstaklega skal vara börn við þessari hættu og eftir atvikum skrúfa fyrir neysluvatnskrana á hitaveitugrind meðan á kaldavatnsleysi stendur.

Húsráðendum er bent á að kynna sér góð ráð komi til þjónusturofs hér á heimasíðunni.

Vatnsveita lokunarsvæði 13 maí Lyngholt