19. maí 2014

Kaldavatnslaust í Seljahlíð

Við framkvæmdir í Hlíðunum varð það óhapp að kaldavatnslögn fór í sundur.  Er því vatnslaust í Seljahlíð.  Unnið er að viðgerð.

Sérstaka varúð skal sýna í umgengni við heitt vatn úr neysluvatnskrönum s.s. í eldhúsi og á baði þar sem kalt vatn til blöndunar er ekki tiltækt í vatnsleysi. Sérstaklega skal vara börn við þessari hættu og eftir atvikum skrúfa fyrir neysluvatnskrana á hitaveitugrind meðan á kaldavatnsleysi stendur.

Húsráðendum er bent á að kynna sér góð ráð komi til þjónusturofs hér á heimasíðunni.

 Kalda vatnslaust í Seljahlíð 19. maí 2014