26. maí 2014

Kaldavatnslaust í Skarðshlíð

Vegna viðgerða er Kaldavatnslaust í Skarðshlíð í dag mánudag 26. maí frá kl. 11:00 og fram eftir degi.

Sérstaka varúð skal sýna í umgengni við heitt vatn úr neysluvatnskrönum s.s. í eldhúsi og á baði þar sem kalt vatn til blöndunar er ekki tiltækt í vatnsleysi. Sérstaklega skal vara börn við þessari hættu og eftir atvikum skrúfa fyrir neysluvatnskrana á hitaveitugrind meðan á kaldavatnsleysi stendur.

Húsráðendum er bent á að kynna sér góð ráð komi til þjónusturofs hér á heimasíðunni.

Kaldavatnslaust í Skarðshlíð