Nú er kuldatíð í kortunum og miklu frosti spáð eftir helgi. Því má reikna með miklu álagi á hitaveitukerfið en eins og áður hefur komið fram, meðal annars í fréttum frá Norðurorku, er staða hitaveitunnar viðkvæm. Heitavatnsnotkun hefur aukist hratt og töluverð áskorun hefur verið að anna aukinni eftirspurn. Jarðhitasvæðið á Hjalteyri sem verið hefur stærsta vinnslusvæði Norðurorku síðustu tuttugu ár er nú komið að þolmörkum og vinnslusvæðið á Laugalandi í Eyjafjarðarsveit er ekki í fullri virkni. Þar hefur ein af þremur jarðhitaholum ekki verið nýtanleg frá því í október með tilheyrandi áhrif á afhendingaröryggi. Þannig að þó að hitaveita Norðurorku ráði við álagið sem stendur þá má ekki miklu út af bregða svo grípa þurfi til frekari aðgerða í samræmi við viðbragðsáætlun hitaveitunnar.
Nú þegar hefur verið óskað eftir því að stórnotendur, eins og til dæmis íþróttamannvirki, minnki heitavatnsnotkun eins og unnt er en hér líkt og annarsstaðar geta allir gert eitthvað en enginn getur gert allt. Ef allir bæta sig aðeins í að fara skynsamlega með heita vatnið, þá næst árangur og þess vegna hvetjum við viðskiptavini okkar til að huga að því hvernig, og í hvað, heita vatnið er notað.
Hér má sjá nánari upplýsingar um ábyrga heitavatnsnotkun
Höfum það huggulegt um hátíðirnar og njótum þeirra lífsgæða sem heita vatnið færir okkur á skynsaman máta þannig að ekki komi til alvarlegs heitavatnsskorts þegar kuldatíð ríkir.
Opnunartími Norðurorku
Opið virka daga kl. 8-12 og 13-15