2. maí 2011

Laus störf hjá Norðurorku

Norðurorka hefur auglýst laus störf þjónustustjóra og verkamanns.

Nú eru í auglýsingu hjá Norðurorku tvö störf, þjónustustjóri og verkamaður.

Þjónustustjóri veitir þjónustuveri fyrirtækisins forstöðu en það er ný þjónustueining sem sinnir almennri viðskiptaþjónustu og tæknilegri ráðgjöf við viðskiptavini.

Staða þjónustustjóra, umsóknarfrestur til 15. maí n.k.

Verkamaður starfar framkvæmdasvið við alla almenna verkamannavinna og önnur tilfallandi verkefni.

Staða verkamanns, umsóknarfrestur til 15. maí n.k.

Nánari upplýsingar um laus störf má fá hjá starfsmannastjóra Guðrúnu Björgu Harðardóttur í síma 460 1327 eða í netfangið gbh@no.is.