6. jan 2014

Loka þarf fyrir heita vatnið í Giljahverfi, Hálöndum o.fl.

Vegna vinnu við bilun á stofnlögn - við það fer út afhending á heitu vatni á stóru svæði

Fimmtudaginn 9. janúar verður heita vatnið tekið af í hluta Giljahverfis eins og sýnt er á myndinni en einnig verður heita vatnið tekið af Pálmholti (norður hús), Réttarhvammi, Rangárvöllum, Hlíðarvöllum, Glerá, Hlíðarenda, Hálöndum, Hesjuvöllum og hesthúsahverfinu (Safírstræti og Skjólin).

Viðskiptavinir eru beðnir að kynna sér góð ráð komi til þjónusturofs sem finna má hér á heimasíðu Norðurorku www.no.is.

Lokunin er fimmtudaginn 9. janúar frá kl. 7:30 og frameftir kvöldi en nánari upplýsingar um framgang viðgerðarinnar verða settar inn hér á heimasíðuna.

Heita vatnið tekið af í Giljahverfi og víðar 9. janúar 2014 vegna viðgerðar á stofnlögn
Lokunarsvæðið þann 9. janúar frá kl. 7:30 og frameftir kvöldi
Smellið á myndina til að sjá svæðið í heild sinni.

Þjónusturof hitaveitu - ábending til húsráðenda

  1. Hafa þarf í huga að loft getur komist á kerfið þegar vatni er hleypt á að nýju. Sérstaklega getur þurft að huga að sérhæfðum búnaði hitakerfa húsa, s.s. gólfhitakerfum, hitalögnum í plönum og dælum þeirra, t.d. með því að stöðva þær á meðan vatnsleysi varir. Kerfin eiga þó að vera útbúin þannig að þessi hætta sé í lágmarki.
  2. Bregðast þarf við lofti í kerfum með lofttæmingu á ofnum, dælum og öðrum búnaði sem loft getur sest í. Einnig er nauðsynlegt að huga að öryggisloka sem getur opnast þegar vatni er hleypt á ef stjórnlokar á grind eru stirðir.
  3. Húsráðendum er bent á að við viðgerðir eða endurbætur á stofnkerfum og/eða heimlögnum kunna óhreinindi að fara af stað í lögnum þegar vatni er hleypt á. Því er nauðsynlegt að skola kerfið vel út með því að láta vatn renna um stund. Best er að útskolun fari fram sem næst inntaksstað sé þess kostur.
  4. Sé húsráðandi í vafa um hvernig bregðast á við skal undantekningalaust haft samband við pípulagningameistara hússins.