28. jún 2013

Lokað fyrir heita vatnið í Eyjafjarðarsveit.

Vegna viðgerðar nk. mánudag á bilun í hitaveitu sunnan við Laugaland í Eyjafjarðarsveit þarf að loka fyrir heita vatnið á bæjum sunnan við Laugaland (austan megin). Lokað verður fyrir heitavatnið frá kl. 09:00 mánudaginn 1. júlí og fram eftir degi.

Vegna viðgerðar á bilun í hitaveitu sunnan við Laugaland í Eyjafjarðarsveit þarf að loka fyrir heita vatnið á bæjum sunnan við Laugaland (austan megin).

Lokað verður fyrir heitavatnið frá kl. 09:00 mánudaginn 1. júlí og fram eftir degi.

Viðskiptavinir eru beðnir um að gæta vel að húsveitum sínum og kynna sér "GÓÐ RÁÐ KOMI TIL ÞJÓNUSTUROFS" hér á heimasíðunni.

Hafa ber í huga að við framkvæmdir sem þessar geta komið upp óvænt atvik sem leiða til þess að verkið dregst umfram það sem áætlað er.  Upplýsingar um framvindu verksins eru settar hér inn á heimasíðuna og er viðskiptavinum bent á að fylgjast með fréttum á heimasíðunni einkum ef vatnið verður ekki komið á síðdegis.  Í því sambandi þarf einnig að hafa í huga að nokkurn tíma tekur að byggja upp fullan þrýsting í dreifikerfinu eftir að vatni hefur verið hleypt á.

Nánari upplýsingar eru veittar í þjónustuveri Norðurorku í síma 460-1300 einnig er hægt að senda fyrirspurnir í netfangið thjonusta@no.is.

Bakvaktasími hitaveitu er 892 7305.