Uppfært kl. 11:30. Viðgerð er nú lokið. Verið er að hleypa vatni á þannig að innan skamms ættu allir á umræddu svæði að vera komnir með vatn.
Um leið og við biðjumst velvirðingar á óþægindum sem áður auglýst lokun kann að hafa valdið þökkum við íbúum fyrir tillitssemina.
Vegna bilunar verður lokað fyrir heitt vatn utan Glerár að hluta (sjá kort) á morgun, þriðjudaginn 11.des.2018.
Áætlaður tími er kl. 10:00 og frameftir degi eða á meðan viðgerð stendur yfir.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem lokunin kann að valda.
Hér má sjá góð ráð við hitaveiturofi.
Svæðið sem um ræðir má sjá á myndinni hér að neðan.
Opnunartími Norðurorku
Opið virka daga kl. 8-12 og 13-15