1. maí 2014

Lokað fyrir kalda vatnið í hluta Hlíðarhverfis og í Lyngholti

Vegna framkvæmda við vatnsveitu er nauðsynlegt að loka fyrir kalda vatnið á morgun föstudaginn 2. maí frá kl. 8:00 og fram eftir degi í hluta Hlíðarhverfis og í Lyngholti, sbr. nánar hér fyrir neðan.

Sérstaka varúð skal sýna í umgengni við heitt vatn úr neysluvatnskrönum s.s. í eldhúsi og á baði þar sem kalt vatn til blöndunar er ekki tiltækt í vatnsleysi. Sérstaklega skal vara börn við þessari hættu og eftir atvikum skrúfa fyrir neysluvatnskrana á hitaveitugrind meðan á kaldavatnsleysi stendur.

Húsráðendum er bent á að kynna sér góð ráð komi til þjónusturofs hér á heimasíðunni.

Þær götur sem taka þarf vatnið af:

Háhlíð (hluti)
Höfðahlíð (austan Háhlíðar)
Langahlíð
Áshlíð
Skarðshlíð (hluti)
Lyngholt

 

Lokunarsvæði vatnsveitu 2. maí 2014 - hluti Hlíðarhverfis