Vegna viðgerðar á stofnæð þarf að loka fyrir heitavatnið í hluta Eyjafjarðarsveitar á morgun miðvikudaginn 13. júlí frá kl. 9.30 og á meðan viðgerð stendur yfir.
Stofnæð hitaveitunnar bilaði við Svertingsstaði. Þar sem um stofnæð er að ræða þarf að loka fyrir heitavatnið á allstóru svæði. Lokunin nær til svæðisins frá og með Gröf I og II norður eftir, til og með Eyrarlandi.
Opnunartími Norðurorku
Opið virka daga kl. 8-12 og 13-15