18. maí 2011

Mistök við prentun reikninga

Þau leiðu mistök urðu hjá prentsmiðjunni sem sér um að prenta reikninga fyrir Norðurorku hf. að hluti þeirra var prentaður þrisvar sinnum.

Þau leiðu mistök urðu hjá prentsmiðjunni sem sér um að prenta reikninga fyrir Norðurorku hf. að hluti þeirra var prentaður þrisvar sinnum.  Þessi mistök hafa auðvitað engin áhrif á þær reikningsfærslur sem birtast í heimabanka, þ.e. ekkert samhengi er þar á milli.

Við biðjum viðskiptavini okkar innilega afsökunar á þessum leiðu mistökum og því miður ekki annað að gera en að viðskiptavinir fargi þeim auka eintökum sem borist hafa af reikningum til þeirra.